David Adams hefur verið skipaður í stjórn Moss Bros fataverslanakeðjunni.

Í frétt Telegraph um málið kemur fram að Adams hafi reynslu af að vinna mað Baugi, sem er stærsti hluthafinn í Moss Bros. Er það síðan Adams var fjármálastjóri House of Fraser, en Baugur átti hlut í þeirri keðju fram til ársins 2006.

Koma Adams til Moss Bros leiðir líklega til þess að forstjóri félagsins, Philip Mountford, hætti störfum hjá Moss Bros. Ráðning hans er til komin til að reyna að lægja öldurnar, en deilur milli hluthafa Moss Bros spruttu upp eftir að Baugur reyndi að taka yfir félagið.