Davíð Arnarson hefur gengið til liðs við Icewear sem forstöðumaður netdeildar fyrirtækisins. Davíð mun leiða áframhaldandi uppbyggingu á netdeild Icewear og innleiða nýjar lausnir, ásamt því að greina tækifæri til sparnaðar og aukinnar sjálfvirkni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

„Davíð kemur til Icewear frá Móberg Group þar sem hann stýrði greiningardeild fyrirtækisins. Þar áður var hann markaðs- og vörustjóri hjá sama fyrirtæki. Þá hefur Davíð starfað sem markaðsstjóri hjá DCG ehf. og stúdentasamtökunum AIESEC á Íslandi ásamt því að kenna hjá Nóbel námsbúðum. Davíð útskrifaðist með B.Sc gráðu í alþjóðaviðskiptum og markaðsfræði frá Háskóla Íslands árið 2013,“ segir í tilkynningunni.

Haft er eftir Ágústi Þóri Eiríkssyni, forstjóra Icewear, að fyrirtækið hafi vaxið mikið á undanförnum árum og að þau séu ánægð með að fá Davíð til sín.