Davíð Arnórsson, höfundur Köku ársins 2017, afhendir frú Elizu Reid fyrstu kökuna á Bessastöðum á morgun fimmtudaginn 16. febrúar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Samtökum iðnaðarins.

Landssamband bakarameistara, LABAK, efndi nýverið til árlegrar keppni um Köku ársins. Keppnin fer þannig fram að keppendur skila inn tilbúnum kökum sem dómarar meta og velja úr þá sem þeim þykir sameina þá kosti að vera bragðgóð, falleg og líkleg til að falla sem flestum í geð og hlýtur hún titilinn „Kaka ársins“.

„Keppnin var haldin í samstarfi við Mjólkursamsöluna og voru gerðar kröfur um að kakan innihéldi skyr frá MS. Sigurkakan er lagskipt og inniheldur m.a möndlukókosbotn, hindberjahlaup og skyrfrómas með lime. Höfundur hennar er Davíð Arnórsson, bakari hjá fyrirtækinu Stofan bakhús í Vestmannaeyjum.

Dómarar í keppninni voru Margrét Kristín Sigurðardóttir frá Samtökum iðnaðarins, Aðalsteinn Magnússon, sölustjóri hjá Mjólkursamsölunni, og Gunnar Örn Gunnarsson, bakarameistari og sölumaður hjá Ölgerðinni.

Sala á kökunni hefst í bakaríum félagsmanna LABAK um allt land föstudaginn 17. febrúar og verður til sölu það sem eftir er ársins,“ segir í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins um málið.