Samkvæmt könnun breska dagblaðsins The Times, er David Cameron einn allra vinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá upphafi. 32% lesenda The Times gáfu honum hæstu eða næst hæstu einkun, 20% lesenda veittu Tony Blair sömu einkunn. 14% lesenda sögðu John Major vera besta forsætisráðherrann, en Gordon Brown hlaut einungis 9% atkvæðanna.

Eini forsætisráðherra Bretlands sem toppaði Cameron er járfrúin Margaret Thatcher, en hún er í uppáhaldi 43% þeirra sem tóku þátt í könnuninni. Niðurstöður könnunarinnar komu sumum á óvart, en búist var við því að David Cameron yrði úthúðaður fyrir allt það sem hefur gengið á á kjörtímabilinu.