Davíð Guðmundsson héraðsdómslögmaður hefur gengið til liðs við Opus lögmenn og bætist við eigendahóp stofunnar. Áður starfaði hann sem sjálfstætt starfandi lögmaður um árabil með eigin rekstur sem og í samrekstri við aðra lögmenn. Áður var hann jafnframt meðeigandi hjá Deloitte. Davíð útskrifaðist frá lagadeild Háskóla Íslands árið 2002 og öðlaðist málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi 2004.