Davíð Harðarsson, nýkjörinn varastjórnarformaður Haga, keypti bréf í fyrirtækinu fyrir rétt tæpar fimm milljónir króna.

Fjöldi hluta í eigu Davíðs eftir viðskiptin eru 141.485 en hann keypti nú 112.000 hluti fyrir 44,6 krónur á hlut.

Davíð var kjörinn í stjórn Haga á hluthafafundi í morgun og í kjölfarið kjörinn varastjórnarformaður.