Myndin af þeim Davíð Oddssyni og Kára Stefánssyni birtist í Frjálsri verslun undir yfirskriftinni Kári fer á kostum eftir að Íslensk erfðagreining (ÍE) og svissneska lyfjafyrirtækið F. Hoffmann-La Roche gerðu með sér risasamning upp á 15 milljarða þar sem Íslensk erfðagreining átti að annast rannsóknarvinnu.

Samningurinn var undirritaður í febrúar 1998 að viðstöddum Davíð, sem þá var forsætisráðherra, og öllu starfsfólki ÍE.

Gamla myndin birtist í Viðskiptablaðinu 12. september 2013. Áskrifendur geta nálgast blaðið hér að ofan undir liðnum tölublöð .