Tveir nýir forstöðumenn hafa tekið við störfum hjá Samtökum atvinnulífsins og samtökin jafnframt tekið við rekstri rekstarfélags Húss atvinnulífsins.

Skipulagsbreytingarnar eru gerðar til að skerpa þjónustu við 2.000 aðildarfyrirtæki Samtaka atvinnulífsins og renna stoðum undir þann sterka grunn sem hefur verið byggður á undanförnum árum að því er segir í fréttatilkynningu frá samtökunum .

Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs Samtaka atvinnulífsins og Ingibjörg Björnsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður rekstrarsviðs Samtaka atvinnulífsins.

Davíð Þorláksson
Davíð Þorláksson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Davíð Þorláksson hefur verið yfirlögfræðingur Icelandair Group frá árinu 2009 ásamt því að vera framkvæmdastjóri fasteignafélagsins Lindarvatns frá árinu 2015. Hann er með MBA gráðu frá London Business School, varð héraðsdómslögmaður árið 2009 og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2006. Davíð var yfirlögfræðingur fjárfestingabankans Askar Capital árin 2007-2009, lögfræðingur Viðskiptaráðs Íslands árin 2005-2007 og samhliða því verkefnastjóri við lagadeild Háskólans í Reykjavík árin 2006-2007.

Hann hefur verið pistlahöfundur í Viðskiptablaðinu frá árinu 2015 og í stjórn Kanadísk-íslenska viðskiptaráðsins frá árinu 2011. Davíð var formaður stýrihóps mennta- og menningarmálaráðherra um máltækni fyrir íslensku, sat í stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna árin 2015-2017, var varamaður í háskólaráði Háskóla Íslands árin 2014-2016, var formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna árin 2011-2013 og sat í ráðgjafanefndum EES og EFTA árin 2005-2007.

Rekstrarsviðiði sem Ingibjörg Björnsdóttir hefur verið ráðin yfir stýrir öllum samrekstri Húss atvinnulífsins og annast fjármálaumsvif og tölvuþjónustu fyrir Hús atvinnulífsins. Ingibjörg varð héraðsdómslögmaður 2007 og lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2005. Hún hefur starfað sem löglærður fulltrúi hjá Lögmönnum í Skipholti og Logos lögmannsstofu sem og lögmaður og einn eigenda Emblu lögmanna þar sem hún sinnti einkum skiptastjórn og ráðgjöf fyrir slitastjórn Landsbanka Íslands. Hún hefur um árabil starfað sem rekstrarráðgjafi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og hlaut viðurkenningu sem bókari árið 2000. Ingibjörg hefur setið í stjórn fjölda fyrirtækja og félagasamtaka.