David Tysk hefur verið ráðinn forstöðumaður áhættustýringar hjá VÍS.  David, sem er fæddur í Svíþjóð, er með meistarapróf í verkfræði frá konunglega tækniháskólanum í Stokkhólmi, KTH.

Hann hefur víðtæka reynslu af fjármálastarfsemi, bæði frá Svíþjóð þar sem hann starfaði meðal annars hjá Sænska seðlabankanum og Nordea bankanum, sem og á Íslandi þar sem hann hefur starfað fyrir Seðlabanka Íslands og nú síðast hjá Landsbankanum þar sem hann gegndi stöðu forstöðumanns í áhættustýringu bankans.

Áhættustýring er eitt af fjórum lykilstarfsviðum vátryggingafélaga. Hjá VÍS mun David heyra beint undir forstjóra og bera ábyrgð á að stefnu VÍS um samhæfða áhættustýringu sé framfylgt en hún er grunnurinn af ákvarðanatöku í fjárfestingum og rekstri félagsins.

David tekur við starfi forstöðumanns áhættustýringar af Þóri Óskarssyni. Þórir mun sjálfur í sumar taka við stöðu tryggingastærðfræðings félagsins af Ragnari Þ. Ragnarssyni sem lætur af störfum vegna aldurs.