DB Schenker og Global Cargo hafa gert með sér samkomulag um að DB Schenker yfirtaki flutningsmiðlunarhluta Global Cargo. Gengið var frá samkomulaginu um miðjan júní með fyrirvara stjórna beggja fyrirtækja sem nú hafa staðfest samninginn. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá DB Schenker.

Eftir yfirtöku DB Schenker mun Global Cargo einbeita sér að rekstri tollvörugeymslu, vöruhótels, hafnarþjónustu og innanbæjardreifingu frá flutningsmiðstöð félagsins að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði, þar sem félögin er bæði til húsa.

DB Schenker mun nota vöruhús og dreifingarþjónustu Global Cargo nú sem fyrr en þjónusta við viðskiptavini beggja fyrirtækja verður aukin enn frekar. Með yfirtökunni verður til sterkari eining sem eykur samkeppni í flutningsmiðlun á Íslandi.

DB Schenker er annað tveggja stærstu flutningsmiðlunarfyrirtækja í heimi.  Schenker er hluti af Deutsche Bahn, þýska járnbrautakerfinu, sem er með um 40 milljarða evra veltu árlega. Hjá fyrirtækinu starfa um 300.000 manns, þar af um 95.000 í flutningsmiðlunarhluta fyrirtækisins. Fyrirtækið er með starfsemi í fimm heimsálfum, í rúmlega 130 löndum og með meira en 2.000 starfsstöðvar. DB Schenker hefur starfað á íslenskum markaði til fjölda ára með umboðsmönnum en opnaði undir eigin merkjum um mitt ár 2011 og hefur vaxið ört síðan.

DB Schenker býður upp á heildarlausnir í flutningum með safnsendingum og heilfarmaflutningum hvaðanæva úr heiminum. DB Schenker leggur ofuráherslu á sjó- og flugflutninga með flutningakerfum félagsins sem er stutt af stærsta landflutningakerfi í heimi; DB Schenker - flutningabíla og lestarkerfinu, með rekjanleika frá brottför til komu (track and trace system).