Todd Lynn fatahönnuður hefur verið ráðinn til Debenhams. Todd, sem er kanadískur, er þekktastur fyrir að klæða Bono, Mick Jagger og Beyonce.

Það má því með sanni segja að Debenhams sé að poppa sig heldur betur upp með því að fá Todd til starfa. Hann verður hluti af teyminu „Designers at Debenhams”. Fleiri hönnuðir sem mynda það teymi eru til dæmis Jasper Conran, hattagerðarmaðurinn Stephen Jones og John Rocha.

Todd Lynn mun mun hanna línu sem inniheldur útiföt, prjónaföt, leður- og gallaföt. Línan verður tilbúin í sölu í október á þessu ári. The Telegraph segir frá málinu hér .