Heildarvelta kreditkorta í októbermánuði var 23,6 milljarðar króna samanborið við 24,4 milljarða króna á sama tíma í fyrra. Samsvarar þetta 3,0% samdrætti milli ára. Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans.Heildarvelta kreditkorta drógst saman um 8,8% í október miðað við mánuðinn á undan.

Debetkortavelta var í október 30,7 milljarðar króna og drógst saman um 2,2% frá fyrri mánuði. Sé heildardebetkortaveltan borin saman við sama tíma í fyrra þá hefur heildardebetkortaveltan dregist saman um 12,3 milljarða króna milli ára eða um 28,6%.