Hlutabréf DeCode hafa lækkað um 1,87% í verði það sem af er dags á Nasdaq . Rétt um kl. 14.00 á staðartíma í New York var gengi bréfanna 5,25 dollarar á hlut.

Liðlega 205 þúsund hlutir hafa skipt um hendur í dag og hefur verðið farið hæst í 5,41 dollar á hlut en lægst í 5,13.  Síðustu 12 mánuði hefur gengi bréfa fyrirtækisins verið hæst 10,77 dollarar og var það 17. janúar sl. Lægst 14. júlí þegar það var 4,70 dollarar.