Það sem af er degi viðskipta í Bandaríkjunum hefur deCODE lækkað um 4%. Félagið hefur verið í lækkunarfasa á undanförnum mánuðum eftir að hafa náð töluverðu flugi í kringum áramótin. Þannig fóru bréf félagsins upp í 13,8 í kringum mánaðarmótin febrúar/mars en hafa síðan lækkað um 56% og kostar hluturinn í félaginu núna 7,71 dollar.