deCODE genetics Inc., móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar (ÍE) sótti í dag, að eigin frumkvæði, um greiðslustöðvun skv. 11 kafla bandarískra gjaldþrotalaga (e. Chapter 11) fyrir dómstóli í Delaware í Bandaríkjunum. Í tilkynningu félagsins kemur fram að þetta er liður í endurskipulagningarferli félagsins, meðal annars til að auðvelda sölu á eignum móðurfyrirtækisins til að hámarka verðmæti þeirra.

Daglegur rekstur samstæðunnar verður óbreyttur á greiðslustöðvunartíma í samræmi við ákvæði bandarískra laga segir í tilkynningu.

Þar kemur fram að á undanförnum mánuðum hefur stjórn deCODE skoðað fjölmarga kosti til að endurskipuleggja rekstur félagsins, þar á meðal sölu á einstökum rekstrareiningum og þróunarlyfjum, reynt var að semja við eigendur útistandandi breytanlegra skuldabréfa og selja nýtt hlutafé. Niðurstaða þessarar vinnu er sú að undirritaður hefur verið samningur við bandaríska félagið Saga Investments LLC um kaup á Íslenskri erfðagreiningu ehf. og allri starfsemi þess. Saga Investments er fjárfestingarfélag í eigu Polaris Venture Partners og Arch Venture Partners, sem eru þekktir fjárfestar í Bandaríkjunum á sviði líftækni. Samningurinn er gerður í samræmi við grein 363 í bandarískum gjaldþrotalögum, en samkvæmt greininni er gildistaka samningsins háð ýmsum skilyrðum, þar á meðal samþykki dómstóla og því að fram fari gagnsætt og opinbert uppboðsferli á vegum gjaldþrotadómstólsins þar sem öllum áhugasömum aðilum verði gefinn kostur á að bjóða í eignir og starfsemi ÍE, í samkeppni við það bindandi tilboð sem nú liggur fyrir.

Ólíklegt að hluthafar fái nokkuð

Gert er ráð fyrir að eftir að söluferli á ÍE sé lokið og endanlegur kaupsamningur hafi komist á, fari móðurfélagið deCODE genetics Inc. í slitameðferð með samþykki gjaldþrotadómstólsins. Miðað við fjárhæð skulda móðurfélagsins er afar ólíklegt að hluthafar deCODE fái úthlutun af söluverðmæti eigna þess.

Tilboðsgjafar í rekstur Íslenskrar erfðagreiningar hyggjast halda starfsemi félagsins í sama horfi og verið hefur.

Í tilkynningu kemur fram að deCODE genetics Inc. hefur einnig gert samkomulag við Saga Investments um tímabundna fjármögnun til að standa straum af kostnaði við rekstur fyrirtækisins á greiðslustöðvunartímanum. deCODE gerir ráð fyrir að þjónusta við viðskiptavini og samstarfsaðila Íslenskrar erfðagreiningar raskist ekki á því tímabili.

Sérstaklega skal tekið fram að umsóknin um greiðslustöðvun sé eingöngu í nafni deCODE genetics Inc. en nái ekki til dótturfélaga þess, þ.m.t. Íslenskar erfðagreiningar.