Mynd leikkonunnar og þáttastjórnandans Ellen DeGeneres, sem var kynnir á Óskarsverðlaunahátíðinni í nótt, sló öll met á Twitter þegar hún deildi mynd af sér og fleiri leikurum á hátíðinni. DeGeneres er fyrsti tístarinn á Twitter sem fagnar því að fleiri en ein milljón netverja hefur deilt mynd hennar. Í raun eru þeir 1,3 milljónir. Myndin fór út um allar trissur og tók það aðeins 34 mínútur að fara yfir milljón. Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, átti fyrra met þegar hann setti mynd á Twitter af kvöldinu þegar hann var endurkjörinn forseti Bandaríkjanna, þ.e. 6. nóvember 2012. Myndinni var deilt 780 þúsund sinnum.

Á myndinni má sjá hina og þessa heimsþekktu leikara á borð við Jennifer Lawrence, Meryl Streep, Julia Roberts, Brad Pitt, Kevin Spacey og Bradley Cooper, sem tók myndina.