Yfir 212.000 farþegar flugu með Icelandair í september síðastliðnum samanborið við tæplega 25.000 í sama mánuði í fyrra. Heildarfarþegafjöldi félagsins hefur nú aukist um 9% á milli ára er horft er til fyrstu níu mánaða ársins, samkvæmt flutningatölum félagið birti í tilkynningu eftir lokun Kauphallarinnar í dag.

Farþegar í millilandaflugi voru tæplega 191.000 í liðnum mánuði, samanborið við um 12.000 í september 2020. Farþegar til Íslands voru 102.000, farþegar frá Íslandi voru 23.000 og tengifarþegar voru 65.000. Stundvísi í millilandaflugi var 88%.

Sætanýting í millilandaflugi var 62% samanborið við 45% í september í fyrra. Sætanýtingin lækkar þó um tíu prósentustig frá ágústmánuði þegar hún nam 72%. Icelandair telur óvissu vegna Delta afbrigðis kórónuveirunnar hafa haft mestu áhrifin á sætanýtinguna. Að auki hafi flugfélagið, líkt og undanfarna mánuði, notað Boeing 767 flugvélar í stað smærri flugvéla á mörgum flugleiðum vegna mikillar eftirspurnar eftir fraktrými.

Farþegar í innanlandsflugi voru 21.500 samanborið við tæplega 13.000 farþega í sama mánuði í fyrra. Farþegum í innanlandsflugi hefur fjölgað um 57% það sem af er ári miðað við sama tímabil í fyrra.

Fjöldi seldra blokktíma í leigustarfsemi jókst um 153% á milli ára í september og var 35% meiri en í ágúst 2021. Fraktflutningar jukust um 42% frá september 2020 og hafa aukist um 23% fyrstu níu mánuði ársins miðað við sama tíma í fyrra.

Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group:

„Flugstarfsemin hefur jafnt og þétt færst nær því sem hún var fyrir heimsfaraldur og vetraráætlunin okkar er um það bil tveir þriðju hlutar af áætlun ársins 2019. Við höfum lagt áherslu á að nýta sveigjanleika félagsins til að auka jafnt og þétt við starfsemina á liðnum mánuðum og mætt þeirri eftirspurn sem hefur skapast samhliða því sem rýmkað er á ferðatakmörkunum.

Nú hafa bandarísk stjórnvöld tilkynnt um fyrirhugaða opnun landamæra sinna fyrir evrópska ferðamenn og lagt jákvæðara mat á stöðu faraldursins á Íslandi. Þetta eru mjög jákvæðar fréttir og verður þá á ný opið fyrir bólusetta farþega á milli allra okkar markaðssvæða í fyrsta sinn síðan ferðatakmarkanir hófust. Það ásamt minnkandi óvissu hefur nú þegar haft jákvæð áhrif á bókunarstöðu og vænta sætanýtingu næstu mánaða.“