Bandaríska flugfélagið Delta Airlines hefur áætlunarflug milli Kennedyflugvallar í New York og Keflavíkurflugvallar þann 1. júní næstkomandi. Í tilkynningu frá félaginu segir að fyrsta vélin lendir að morgni 2. júní en flogið verður fimm daga vikunnar fram á haust.

„Íslenskir flugfarþegar Delta geta ferðast á einum farseðli frá Íslandi til New York og síðan áfram með flugfélaginu til fjölda annarra áfangastaða í Bandaríkjunum, Kanada, S-Ameríku og eyja Karíbahafsins. Delta þjónar 347 áfangastöðum í 64 löndum í sex heimsálfum, þar á meðal í samvinnu við flugfélög á borð við Air France og KLM. Delta Air Lines er eitt stærsta flugfélag heims. Farþegaþota Delta, flug 51, fer frá Keflavíkurflugvelli til Kennedyflugvallar kl 10:50 að morgni og lendir í New York kl. 13:05 að staðartíma. Delta, flug 52, til Íslands fer frá Kennedyvelli kl. 23:35 að kvöldi og lendir á Keflavíkurflugvelli kl. 9:10 að morgni næsta dags. Tímasetningar flugs Delta miðast við staðartíma í Keflavík og New York. Ekki er flogið á þriðjudögum og miðvikudögum,“ segir í tilkynningunni.

Bob Hannah, svæðisstjóri markaðsmála Delta í Evrópu, segir að með tilkomu félagsins opnist ný tækifæri fyrir bandaríska ferðamenn til að heimsækja og skoða Ísland. Þá segir að flugfargjöld félagsins séu á mjög samkeppnishæfu verði, hvort sem er á viðskiptafarrými eða almennu farrými. „Með tilkomu Delta á íslenska flugmarkaðinn geta íslenskir farþegar félagsins náð víðtækum tengiflugum frá Keflavíkurflugvelli með einum farseðli og auðveldað sér þannig ferðalög með Delta innan Bandaríkjanna og um allan heim,“ segir Bob Hannah. „Það sem meira er er að með tilkomu Delta opnast ný tækifæri fyrir bandaríska ferðamenn að heimsækja og skoða Ísland.“

Íslenskur flugstjóri í fyrsta flugi

Í fyrsta flugi Delta Airlines til Íslands verður John S. Magnusson flugstjóri. Hann er fæddur á Íslandi og lærði flug á Reykjavíkurflugvelli. Í tilkynningunni kemur fram að John stundaði flugnám hjá flugskólanum Flugtaki og fékk einkaflugmannsréttindi árið 1976. Hann hefur verið flugmaður hjá Delta í 34 ár, þar af flugstjóri í 13 ár. John er með íslenskan ríkisborgararétt, en hann er jafnframt ræðismaður Íslands í Minnesota.