Delta Air Lines mun geta tekið allt að 7 tonn af frakt í hverri ferð milli Keflavíkur og Kennedy-flugvallar í New York þá fimm daga vikunnar sem flogið verður til landsins. Áætlunarflugið hefst að morgni 2. júní nk. þegar fyrsta vélin lendir kl. 9.20 um morguninn í Keflavík.

Í fréttatilkynningu segir að með tilkomu áætlunarflugs Delta Air Lines til landsins í sumar aukist talsvert valkostir inn- og útflutningsfyrirtækja hér á landi vegna áætlunarkerfis flugfélagsins í Norður-Ameríku og öðrum heimsálfum. „Vöruflutningar Delta til Kennedyflugvallar margfalda möguleika vöruflytjenda og framleiðenda sjávarafurða til að flytja vörur sínar með auknum hraða og öryggi um öflugt dreifikerfi Delta beint á markað í stórborgum Bandaríkjanna og Kanada," segir í tilkynningunni.

Ekki er flogið á þriðjudögum og miðvikudögum.  Frá Íslandi flytja þotur Delta t.d. ferskar sjávarafurðir, eldislax og -silung og aðrar útflutningsvörur til Bandaríkjanna og víðar.  Hingað mun Delta flytja m.a. neytendavörur, véla- og varahluti, ferska ávexti, grænmeti og margt fleira að því er fram kemur í fréttatilkynningu.

Umboðs- og vörumiðlun fyrir flugfrakt Delta er hjá Bláfugli ehf. en Airport Associates á Keflavíkurvelli annast losun og hleðslu vélar Delta.