Lánasamningum Reykjanesbæjar við írska bankann Depfa var hafnað í fyrstu og erfitt var að leita samninga vegna efnahagkreppunnar og erfiðileika bankans sjálfs sem var í slitameðferð. Bærinn hefur nú náð samningum við bankann um framlengingu á 1,8 milljarða króna láni en það gjaldféll í ágúst í fyrra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bæjarstjórn Reykjanesbæjar. Tilkynnt var í morgun að bærinn hefur náð samkomulagi um endurfjármögnun og framlengingu lána við Depfa banka og hjá Lánasjóði sveitafélaga.

Með samningi sem bæjarráð samþykkti í morgun er lánið framlengt um tvö ár. Bæjarráð fagnaði samhljóða að komin væri niðurstaða í málið. „þetta er mjög jákvætt fyrir okkur. Bankinn hefur gefið sér tíma til að fara yfir stöðu bæjarfélagsins og samþykkir þessa samninga í framhaldi af því. Þetta gefur okkur svigrúm til að losa m.a. um skuldabréf sem bærinn á sem nú er að stofnvirði um 8,2 milljarðar kr." segir Árni Sigfússon, bæjarstjóri Reykjanesbæjar.