Deutsche Bank, sem er stærsti banki Þýskaland, hefur gert yfirtökutilboð sitt í Deutsche Postbank opinbert. Tilboðið hljóðar upp á 25 evrur á hlut. Bankinn mun fjármagna yfirtökuna með 10 milljarða hlutafjáraukningu sem lauk á miðvikudaginn síðasta. Deutsche Bank á þegar 30% hlut í bankanum og mun gera tilboð í alla hluti í bankanum. Deutsche Bank lofaði að kaupa 27,4% hlut Deutsche Post (póstsins) í Postbank árið 2012 fyrir 45 evrur á hlut. Því hafa minni hluthafar lýst óánægju sinn með tilboðið upp á 25 evrur, en það er lögbundið lágmark.