Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Díönu Óskarsdóttur í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Suðurlands til næstu fimm ára. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins.

Díana er með BS gráðu í geislafræði, meistarapróf í lýðheilsuvísindum og hefur að auki stundað nám í stjórnun og rekstri á sviði heilbrigðisþjónustu. Frá árinu 2015 hefur hún gegnt starfi deildarstjóra á röntgendeild Landspítalans, samhliða lektorsstöðu við Háskólann í Reykjavík. Áður starfaði hún í sjö ár sem geislafræðingur hjá Hjartavernd auk þess að vera námsbrautarstjóri í lektorsstöðu við Háskóla Íslands í tíu ár. Díana hóf fyrst störf sem geislafræðingur árið 1990 og hefur frá þeim tíma meðal annars unnið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Landspítalanum og hjá Geislavörnum ríkisins.

Í mati hæfnisnefndar segir meðal annars að Díana hafi haldbæra reynslu af stjórnun og mannauðsmálum, hún geti sýnt fram á góðan árangur í breytingastjórnun við krefjandi aðstæður, þekking hennar á starfsemi sjúkrahúsa sé haldgóð og að hún hafi góða innsýn í stjórnsýslu, auk haldbærrar reynslu af samskiptum við opinbera aðila og fjölmiðla.

Díana tekur við embættinu af Herdísi Gunnarsdóttur sem hefur veitt Heilbrigðisstofnun Suðurlands forstöðu síðastliðin fimm ár.