Óskarsverðlaunahafinn Leonardo DiCaprio ætlar að halda veislu næst þegar Hillary Clinton mætir til Kaliforníu. Aftur á móti mun hann rukka hvern einasta gest um 33.400 dali. Þetta kemur fram á vef MarketWatch.

Með viðburðinum ætlar hann að safna fé fyrir forsetaframbjóðandann Hillary Clinton og Demókrataflokkinn. Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem Hollywood sýnir stuðning sinn. Fyrr á þessu ári, seldi George Clooney tvö sæti við matarborð sitt og Hillary á 353.000 dali.