Diljá Rudolfsdóttir hefur verið ráðin forstöðukona snjallvæðingar hjá Veitum. Diljá útskrifaðist með B.Sc. gráðu í gervigreind (Artificial Intelligence) frá Háskólanum í Edinborg árið 2013.

Hún hefur síðan unnið við stafræna innleiðingu og snjallvæðingu hjá fjármálafyrirtækjum og bönkum í Skotlandi, m.a. hjá lífeyrissjóðnum Standard Life, Tesco Bank og Fortune 500 fyrirtækinu FIS sem býður upp á margvíslegar fjármála- og hugbúnaðarlausnir og þjónustu.

Meðfram störfum sinnti Diljá hugðarefnum sínum sem m.a. snúa að atvinnutækifærum ungs fólks óháð félagslegum bakgrunni þess. Hún stofnaði samtökin Young Person´s Development Network sem unnu til European Diversity Awards árið 2015, fyrir Outstanding Employee Network. Einnig vann hún sem sjálfboðaliði við að styða ungt fólk með Downs heilkenni í atvinnuleit.

Diljá mun vinna að gerð hermilíkana af veitukerfum sem nýta má til að gera rekstur þeirra hagkvæmari og öruggari og tengja þau nýju snjallmælakerfi sem Veitur munu taka í notkun á næstu árum. Einnig mun hún leggja áherslu á notkun gervigreindar og snjallvæðingar í þjónustu við viðskiptavini Veitna.