Í fréttatilkynningu frá veitingastaðnum Dill segir að staðurinn hljóti nú einna stærstu viðurkenningu sem veitingastaðir víða um heim keppast um að fá, eina Michelin stjörnu. Er um fyrsta staðinn á Íslandi sem hlýtur þennan nafntogaða heiður matvælageirans.

„Veitingastaðurinn DILL Restaurant hefur getið sér gott orð hérlendis sem erlendis. Hann hefur hlotið margskonar viðurkenningar og hefur nokkrum sinnum verið valinn besti veitingastaður Íslands á listum á borð við White Guide Nordic, Nordic Prize og víðar," segir auk þess í tilkynningunni.

„Ragnar Eiríksson matreiðslumaður tók við stöðu yfirkokks í árslok 2015 þegar annar stofnenda DILL, Gunnar Karl Gíslason, flutti af landi brott til að standsetja veitngastaðinn Agern á Grand Central Terminal í New York í samstarfi við Claus Meyer. Agern fékk sína Michelin stjörnu seint á síðasta ári.

Veitingastjóri Sæmundar í sparifötunum, Ólafur Ágústsson, tók við stöðu Gunnars og er nú starfandi framkvæmdastjóri á Sæmundi í sparifötunum og hefur yfirumsjón með DILL Restaurant, Hverfisgötu 12 og Mikkeller & Friends Reykjavík ásamt Hinriki Carl Ellertssyni.

Innanhúshönnuður DILL er Hálfdán Pedersen leikmyndahönnuður sem hefur skapað sér orð víða um heim fyrir störf sín.“