© Aðsend mynd (AÐSEND)

Dögg Hjaltalín, framkvæmdastjóri Félags viðskiptafræðinga- og hagfræðinga, tekur í dag við starfi upplýsingafulltrúa Íslandsbanka næstu mánuði. Starfinu gegnir Guðný Helga Herbertsdóttir en hún er á leiðinni í fæðingarorlof.

Guðný Helga býst við því að verða frá fram á næsta sumar.

Dögg er viðskiptafræðingur. Hún hefur m.a. verið fjárfestatengill hjá Eimskip og blaðamaður á Viðskiptablaðinu.