Íslenska ferðatæknifyrirtækið Dohop hefur tryggt sér frekari fjármögnun frá breska fjárfestingasjóðnum Scottish Equity Partners (SEP). Í fréttatilkynningu segir að fjárfestingin hlaupi á hundruðum milljónum króna en SEP fjárfesti fyrst í Dohop í lok árs 2020. Á næstu mánuðum er markmið Dohop að bæta enn frekar við starfsmannafjöldann og ráða um 30 starfsmenn til viðbótar.

„Fjöldi flugfélaga í viðskiptum við Dohop hefur tvöfaldast frá því í lok árs 2020 þegar SEP fjárfesti fyrst í félaginu. Síðan þá hefur verið töluverður starfsmannavöxtur hjá félaginu en 25 manns hafa bæst í hópinn. Viðbótarfjárfesting SEP mun auka vöxt okkar enn frekar og efla tækni okkar til að gjörbylta tengingum í flugi,“ er haft eftir Davíð Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Dohop.

Tækni Dohop gerir flugfélögum kleift að selja tengiflug með öðrum flugfélögum og leyfir þeim að fjölga þannig áfangastöðum og þjóna fleiri farþegum en ella. Um 60 flugfélög nýta tækni félagsins, þar á meðal easyJet, Air France, Vueling, Transavia og Eurowings.

Dohop er fyrsta íslenska fyrirtækið sem sjóðurinn Scottish Equity Partners fjárfestir í en þó ekki fyrsta ferðafyrirtækið. Árið 2007 fjárfesti SEP í Skyscanner sem er ein vinsælasta flugleitarvél í heimi. Skyscanner var selt árið 2016 til Trip.com á jafnvirði 210 milljarða íslenskra króna.