Íslenska flugleitarsíðan Dohop hefur verið tilnefnd sem „Besta flugleitarsíða heims“ á World Travel Awards, en verðlaunin verða afhent á karabísku eyjunni Anguilla þann 7. desember næstkomandi.

Samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu kemst enginn starfsmaður frá því til þess að sinna verkefninu. Leitar það þess vegna að fulltrúa sem er reiðubúinn að fara til Anguilla frá 4. til 9. desember og mæta fyrir hönd fyrirtækisins á verðlaunaafhendinguna að kvöldi 7. desember. Hátíðin verður haldin á Cuisinart Golf Resort & Spa, en ef Dohop sigrar í sínum flokki mun viðkomandi þurfa að taka við verðlaununum fyrir hönd fyrirtækisins.

Stendur Dohop því fyrir leik þar sem þátttakendur þurfa að setja svonefnda „selfie“ af sér á Instagram, en nánar er fjallað um málið hér . Sigurvegari verður valinn þann 20. nóvember næstkomandi.