Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Dohop hefur nú opnað skrifstofu í Noregi en hingað til hefur fyrirtækið einungis haft aðstöðu á Íslandi. Dohop hefur mikið að færa Norðmönnum, sérstaklega þegar kemur að tengingu lággjaldaflugfélaga við önnur, vandamál sem tækni Dohop leysir vel. „Við ákváðum að ráða markaðsstjóra í Noregi og sækja þangað af alvöru. Við höfum áður tekið hænuskref þar en langar núna að taka gott hopp inn á markaðinn og sjá hvað við getum gert,“ segir Kristján Guðni Bjarnason, framkvæmdastjóri Dohop.

Lauga Óskarsdóttir var ráðin til verkefnisins en hún hefur búið í Noregi um árabil. Lauga bjó einnig í New York og lagði þar stund á viðskiptafræði við Berkeley College. „Við hlökkum til að takast á við norska markaðinn með Laugu” segir Kristján. “Eftir velgengni hérna heima undanfarin ár er kominn tími til þess að færa út kvíarnar.”

Vikulega framkvæma notendur Dohop um 150.000 leitir. Notendurnir koma frá öllum þjóðlöndum en 15% þeirra eru Íslendingar og 3% Norðmenn. Bein markaðssetning hefur fyrst og fremst farið fram á Íslandi. Dohop var stofnað árið 2004 og þar starfa í dag 10 manns við þróun, rekstur og markaðssetningu ferðaleitarvélarinnar Dohop.com. Hjá Dohop er boðið upp á flug, hótel og bílaleit.