Á árunum 1990-2005 luku um 900 Íslendingar doktorsnámi og var meðalaldur þeirra við útskrift tæp 37 ár. Sá sem var yngstur við doktorsvörn sína á þessu tímabili var 25 ára og sá elsti 69 ára. Þetta kemur fram í nýju fréttabréfi Rannís.

Tæplega fjórir af hverjum tíu doktorum voru konur og var meðalaldur þeirra tveimur árum hærri en karlanna eða rúmlega 38 ár á móti 36 árum hjá körlum. Þegar tímabilið 2000-2005 er skoðað eftir sviðum má sjá að doktorar í raunvísindum og verk-og tæknifræði voru að jafnaði yngri við útskrift en doktorar í félags-, hug og heilbrigðisvísindum. Hafa ber í huga að fáir einstaklingar standa að baki meðaltölunum svo aldur hvers doktors fyrir sig getur haft nokkur áhrif á niðurstöðuna.

Á öðrum Norðurlöndum eru doktorar að jafnaði á svipuðum aldri og íslenskir doktorar þegar þeir ljúka prófi nema í Danmörku þar sem þeir eru að meðaltali mun yngri eða aðeins ríflega 34 ára segir í fréttabréfinu.