Gengisvísitalan er nú 205,2 stig samkvæmt Markaðsvakt Mentis og hefur krónan því veikst um 1,5% frá opnun gjaldeyrismarkaða í morgun en 1,9% frá opinberu gengi Seðlabankans frá því í gær.

Krónan veiktist um 3,1% í gær og hélt áfram að veikjast eftir að markaðir opnuðu í morgun.

Á myndinni hér til hliðar má sjá þróun gengisvísitölunnar s.l. mánuð miðað við opinbert gengi. Opinbert gengi var í morgun 204,7 stig, sem er það hæsta frá upphafi, en var í gær 201,2 stig, sem þá var jafnframt það hæsta frá upphafi.

Krónan hefur nú veikst um 13,1% s.l. fimm daga sé miðað við markaðsgengi nú og lokagengi á mörkuðum s.l. fimmtudag.

Samkvæmt Markaðsvakt Mentis stendur Bandaríkjadalur nú í 111,8 krónum, Evran í 155,2 krónum og Sterlingspundið í 196,9 krónum.

Þá stendur svissneskur franki í 98,7 krónum, japanskt jen í 1,1 krónu og danska krónan í 20,8 krónum.