Domino's Pizza hefur neyðst til þess að loka stöðum sínum á Akranesi, Selfossi og Akureyri í dag og á morgun vegna verkfallsaðgerða, en frá þessu er greint á Facebook síðu fyrirtækisins.

Þar stendur eftirfarandi:

„Vegna verkfallsaðgerða SGS verða verslanir okkar á Akranesi, Selfossi og Akureyri lokaðar í dag og á morgun.

Verslanirnar opna aftur á hefðbundnum tíma á föstudag.“