Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra hefur beint þeim tilmælum til sýslumannsins á Selfossi að hann endurskoði þá ákvörðun sína að handtaka 370 einstaklinga í Árnessýslu, þar sem þeir hefðu ekki skilað sér í fjárnám hjá embætti hans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu en sýslumaðurinn á Selfossi tilkynnti fjölmiðlum 19. janúar, að hann ætlaði að gefa fyrirmæli til lögreglu um að handtaka einstaklinga.

Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að sýslumaðurinn tók ákvörðun sína án samráðs við dómsmálaráðuneyti.

„Í tilefni hennar vill dómsmálaráðherra taka fram, að hann telur ekki skynsamlegt af sýslumanni að kynna ákvörðun sína með þeim hætti, sem hann hefur gert í fjölmiðlum,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

„Þá sé það ekki í samræmi við ákvarðanir ríkisstjórnarinnar, að nú sé gripið  til óvenjulegra og harkalegra innheimtuaðgerða af hálfu sýslumanns. Í því efni beri að gæta reglna stjórnsýsluréttarins um jafnræði og meðalhóf í ljósi aðstæðna í þjóðfélaginu.“

Þá kemur fram að sýslumaðurinn hefur tilkynnt ráðuneytinu, að hér eftir sem hingað til muni verða beitt vægustu aðferðum við innheimtu gjalda auk þess sem sýslumaður segir, að yfirlýsing sín hafi ekki verið viðeigandi í hinu erfiða umróti í þjóðfélaginu um þessar mundir.

„Sýslumaður hefur jafnframt skýrt ráðuneytinu frá því, að hann muni taka til endurskoðunar vinnubrögð í þeim tilvikum að ítrekuðum kvaðningum hafi ekki verið sinnt og hvetji alla hlutaðeigandi til þess að hafa samband vegna sinna mála þannig að þeim verði lokið með farsælum hætti,“ segir í tilkynningunni.