Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra ritaði í gær undir samstarfsáætlun með Petras Baguska, dómsmálaráðherra Litháens.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá dóms- og kirkjumálaráðuneytinu.
Samkvæmt áætluninni munu dómsmálaráðuneyti landanna efla samstarf sitt, þar á meðal á sviði fangelsismála.
Í fréttatilkyningunni segir að fyrr á árinu hafi ráðherrarnir komist að samkomulagi um að fangar frá Litháen í íslenskum fangelsum skyldu taka út refsingu í heimalandi sínu, enda væru þeir dæmdir til nokkurra ára refsivistar.
Á fundi ráðherranna í gær var staðfest, að þrír fyrstu fangarnir væru á förum til Litháens, enda hefði verið gengið frá öllum nauðsynlegum formsatriðum.
Að loknum fundi ráðherranna heimsótti Björn Bjarnason fangelsi fyrir síbrotamenn í Vilníus og kynnti sér aðstæður þar.