Hæstiréttur staðfesti rétt í þessu dóm héraðsdóms Reykjavíkur í gengislánamálinu svokallaða sem Lýsing höfðaði gegn einstaklingi sem hafði tekið bílalán hjá fyrirtækinu árið 2007.

Dómur Hæstaréttar þýðir að reikna á ólögmæt gengistryggð lán niður miðað við óverðtryggða vexti Seðlabanka Íslands. Stefndu í málinu vildu að lánin yrðu reiknuð miðað við samningsvexti án gengistryggingar.

Dómurinn mun birtast í heild sinni á heimasíðu Hæstaréttar, www.haestirettur.is , klukkan 16:30.