Margeir Pétursson
Margeir Pétursson
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Dómsuppsaga verður í máli Arion banka gegn Margeiri Péturssyni og félagi hans, Margeiri Péturssyni ehf. 11. október nk. samkvæmt dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur.

Vonir stóðu til þess að málinu yrði lokið með samningum fremur en í dómsal en það tókst ekki, að sögn Guðmundar Ingva Sigurðssonar hdl., lögmanns Margeirs.

Málið snýst um með hvaða hætti krafa Margeirs á Arion banka á að koma til skuldajöfnar vegna skulda Margeirs við Arion banka, áður Kaupþing.