Trump hótelið í Las Vegas.
Trump hótelið í Las Vegas.
Trump hótelið í Las Vegas.

Donald Trump er einn þeirra sem hefur gaman af athygli. Í fyrra sagðist hann myndi bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna en virðist hafa lagt þau plön frá sér, í bili að minnsta kosti.

Framboð Newt Gingrich sagði blaðamönnum í dag að Donald Trump myndi lýsa yfir stuðningi við Gingrich í forvali Repúblíkana. Þetta reyndist vera rangt og þykir afar vandræðalegt fyrir framboð Gingrich.

Trump flaug nefnilega til Las Vegas í gærkvöldi til að styðja Mitt Romney, sem er aðal keppinautur Gingrich. Trump mun lýsa yfir stuðningi við Romney í kvöld á Trump hótelinu í Las Vegas.

Forval Repúblikanaflokksins 2012.
Forval Repúblikanaflokksins 2012.