Í morgun hóf ný deilihjólaleiga starfsemi í Reykjavík, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá seinni partinn í sumar voru tvö félög um hituna um þjónustusamninginn við borgina. Félagið sem keypti Wow hjólin, sem notuð höfðu verið fyrir samskonar þjónustu síðasta sumar úr þrotabúi félagsins, hlaut ekki samninginn.

Hjólaleigunni var í morgun hleypt af stokkunum við eina af rúmlega 40 stöðvum sem notendur geta sótt eða skilað hjólum. Hægt verður með appi að sjá laus hjól . Deilihjólaleigan verður notendum að kostnaðarlausu fyrstu vikuna. Hundrað hjól verða til reiðu fyrst í stað og fengu borgarstjóri, forseti borgarstjórnar, formaður skipulags- og samgönguráðs og formaður umhverfis- og heilbrigðisráðs að prófa fyrstu hjólin.

Deilihjólaleigan er rekin undir merkjum Donkey Republic sem býður hjól í mörgum borgum og geta notendur pantað hjól með appi í síma. Kerfið á Íslandi er rekið af fyrirtækinu Framúrskarandi ehf. samkvæmt þjónustusamningi við borgina.
Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í sumar voru tvö félög um hituna um þjónustusamninginn við borgina, en hitt félagið keypti Wow hjólin sem notuð höfðu verið fyrir samskonar þjónustu síðasta sumar, úr þrotabúi félagsins.

Þjónustan sem Donkey Republic býður er þannig að hægt er að fá hjól í áskrift fyrir 3.500 krónur á mánuði og ársáskrift fyrir hjólin 30 þúsund krónur. Stöðvarnar sem verða víða um miðborgina eru venjulegir hjólabogar og hjólin venjuleg götuhjól.

„Við trúum því að hjólreiðar og aðrar örflæðilausnir séu framtíð almenningssamgangna,“ segir Eyþór Máni Steinarsson, verkefnastjóri. „Hjólreiðar munu minnka umferðaröngþveiti, eru umhverfisvænni og gera manni kleift að stunda líkamsrækt á meðan maður ferðast“.