Arena, nýr rafíþróttaleikvangur sem rís nú í turninum Kópavogi, hefur ráðið þrjá lykilstarfsmenn til félagsins en stefnt er að opnun í ágúst. August Demirsson kemur frá Inferno Online í Svíþjóð, Þórir Viðarsson frá rafíþróttadeild KR og Donna Cruz frá Nova.

Donna Cruz hefur verið ráðinn markaðsstjóri Arena og mun sinna yfirumsjón með viðburðahaldi en Donna starfaði áður sem upplýsinga- og þjónustufulltrúi hjá Nova og sem verktaki hjá viðburðafyrirtækinu CP til margra ára. Þar að auki hefur hún starfað við útsendingar frá rafíþróttum.

Þórir Viðarssson hefur verið ráðinn yfirþjálfari hjá Arena og kemur til með að halda utan um allt rafíþróttastarf ásamt því að skipuleggja viðburði því tengdu. Hann hefur yfir 20 ára reynslu af skipulagningu rafíþrótta og er með þjálfararéttindi frá ÍSÍ.

August Demirsson er tækni- og keppnisstjóri Arena. August starfaði áður hjá stærstu rafleikjahöll í heimi Inferno Online í Svíþjóð í sambærilegu starfi. August er 25 ára gamall og nýútskrifaður leikjahönnuður frá Uppsala Universitet.

„Við erum mjög ánægð með ráðningarnar á þessu öfluga fólki og teljum okkur vera með rétta teymið til að opna og reka glæsilegustu rafleikjahöll á norðurlöndunum. Okkur hlakkar til að opna dyrnar í ágústmánuði og bjóða Íslendinga velkomna til okkar." Segir Sigurjón Steinsson, framkvæmdastjóri Arena, í tilkynningunni.

Arena er afþreyingarmiðstöð fyrir alla þá sem hafa gaman af tölvuleikjum og tengdri afþreyingu. Í Arena munu fara fram skipulagðar æfingar rafíþrótta fyrir börn í samstarfi við íþróttafélög á svæðinu. Beinar útsendingar frá innlendum keppnum í rafíþróttum verða teknar upp í Arena á og sendar út á Stöð 2 Esports. Þá verður einnig veitingastaður í rýminu.