Lagadeild hefur ráðið Dóru Guðmundsdóttur LL.M. aðjúnkt við deildina frá 1. september 2009.
Þetta kemur fram á vef Háskóla Íslands. Dóra lauk embættisprófi (cand.jur.) í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990. Hún lauk meistaraprófi frá European Academy of Legal Theory, Belgíu 1994, í Evrópurétti og almennri lögfræði og meistaraprófi (LL.M) frá Háskólanum í British Columbia, Kanada árið 1995 á sviði þjóðaréttar, lögfræðilegrar aðferðafræði; aðferðafræði Mannréttindadómstóls Evrópu. Dóra stundar nú doktorsnám við Háskólann í Cambridge á sviði Evrópuréttar.
Eftir útskrift starfaði Dóra í tvö ár sem dómarafulltrúi við Borgardóm Reykjavíkur, var lögfræðingur og aðstoðarmaður dómara við EFTA-dómstólinn 1995-1999 og varadómari við EFTA-dómstólinn 2000-2007. Dóra var stundakennari við lagadeild Háskóla Íslands 2000-2006 þar sem hún kenndi Evrópurétt og við lagadeild Háskólans á Bifröst frá 2004 en þar kenndi hún almenna lögfræði auk fyrrgreindra faga.