© Aðsend mynd (AÐSEND)

Dóra B. Axelsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður einkabankaþjónustu MP banka. Fram kemur í tilkynningu frá bankanum að Dóra gekk til liðs við einkabankaþjónustu MP banka í desember síðastliðnum en hún starfaði áður hjá Virðingu hf. sem sérfræðingur í skuldabréfastýringu. Dóra starfaði einnig hjá SPRON um sjö ára skeið, meðal annars sem forstöðumaður eignastýringar og verðbréfaþjónustu.

Dóra er með BSc í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, MSc í alþjóðaviðskiptum frá Copenhagen Business School og próf í verðbréfaviðskiptum.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Þá hefur Gísli Ásgeirsson verið ráðinn viðskiptastjóri í einkabankaþjónustu MP banka. Hann starfaði áður sem verkefnastjóri hjá Íslandsbanka frá árinu 2010. Gísli starfaði um árabil við rekstur og markaðsmál hjá eignarhaldsfélaginu Atlas hf. sem þjónustar fyrirtæki í sjávarútvegi.

Gísli er Cand oecon frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Reykjavík.

© Aðsend mynd (AÐSEND)

Kristinn Jóhannes Magnússon hefur jafnframt verið ráðinn í starf sérfræðings í eignastýringu MP banka, með áherslu á innlenda stýringu. Hann starfaði áður í eignaumsjón og fjárstýringu hjá skilanefnd Kaupþings frá árinu 2009. Kristinn hefur jafnframt kennt áhættustýringu í fjármálaverkfræði við Háskólann í Reykjavík.

Kristinn er með BSc í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MSc í aðgerðagreiningu (Operations research) frá Colombia University í New York.

Þá hefur Ari Ólafsson verið ráðinn sérfræðingur í áhættustýringu MP banka. Ari hefur lokið meistaragráðum í rekstrarverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík og í áhættustýringu og fjármálaverkfræði  frá Imperial College í London auk BSc í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.