Auglýsingastofan Brandenburg fékk til sín öflugan liðsstyrk á dögunum þegar Dóri Andrésson var ráðinn sem hönnunarstjóri, eða Associate Creative Director. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu.

Dóri útskrifaðist sem grafískur hönnuður frá Listaháskóla Íslands árið 2010, en meðfram námi vann hann hjá Vinnustofu Atla Hilmarssonar. Frá útskrift og til ársins 2018 var hann hjá Íslensku auglýsingastofunni, þar sem hann starfaði þvert yfir stofuna, seinustu árin sem aðstoðarhönnunarstjóri. Meðal fyrirtækja sem Dóri hefur unnið fyrir eru Icelandair, Inspired by Iceland, Air Iceland Connect, Smáralind, Landsbókasafn Íslands, Kron Kron, Agent Fresco og Cintamani.

Verkefni sem Dóri hefur komið að hafa hlotið fjölda FÍT og ÍMARK verðlauna og viðurkenninga í fjölbreyttum flokkum, m.a. fyrir auglýsingar, mörkun og myndskreytingar ásamt því að hafa komist í úrslit í European Design Awards. Þá hafa verk hans ásamt viðtölum birst bæði í innlendum og erlendum fagtímaritum og bókum. Dóri hefur setið í dómnefnd FÍT og tekið þátt í samsýningum, bæði hér heima og erlendis.

„Það eru mörg krefjandi verkefni framundan og því mikilvægt að hafa rétt fólk í öllum stöðum. Seinustu tvö árin höfum við verið valin auglýsingastofa ársins af ÍMARK og er ráðning Dóra liður í að efla hóp stofunnar enn frekar. Dóri hefur strax komið sterkur inn í hugmynda- og hönnunarvinnu fyrir marga af okkar stærstu viðskiptavinum, svo það er mikill happafengur að hafa fengið hann til liðs við okkur.“ segir Hrafn Gunnarsson, hönnunarstjóri og einn eigenda stofunnar.