Dótturfélag Actavs Group hf., Amide Pharmaceuticals, hefur gengið frá kaupum á þremur samheitalyfjum frá Sandoz, segir í tilkynningu frá félaginu í dag. Sandoz er dótturfélag lyfjafyrirtækisins Novartis.

?Kaupin á vörunum koma í kjölfar ákvörðunar bandarískra samkeppnisyfirvalda, sem samþykktu yfirtöku Novartis á EON Labs Inc. með þeim skilyrðum að Novartis seldi frá sér þrjú lyf," segir í tilkynningunni.

Forstjóri Amide segir að lyfin séu góð viðbót í lyfjasafn Amide. ?Búast má við að árlegar sölutekjur af lyfjunum nemi um 4-5 milljónum Bandaríkjadala og eru þau góð viðbót við núverandi lyfjasafn Amide," segir Divya.

Lyfin sem félagið kaupir eru Desipramine (geðdeyfðarlyf), Orphenadrine (vöðvaslakandi lyf) og Rifampin (sýklalyf). Kaupverð er ekki gefið upp.

?Kaup Actavis á Amide eru liður í þeirri stefnu fyrirtækisins að hasla sér völl á Bandaríkjamarkaði. Framtíðarsýn fyrirtækisins er að vera eitt af leiðandi fyrirtækjum á heimsmarkaði fyrir samheitalyf," segir í tilkynningu Actavis.