Warehouse hefur opnað fyrstu flaggskipsverslunina á Írlandi í einni helstu verlunargötu í Dublin, í South King Street. Verslunin er afar stór, á tveimur hæðum og er hluti af frekari útrás Warehouse á Írlandi segir í frétt á heimasíðu Baugs.

Það er Mosaic Fashion sem á Warehouse, sem á og rekur 38 verslanir á Írlandi.

Útlit nýju verslunarinnar er einskonar tákn fyrir upphaf Warehouse með sveitalegu en þó kvenlegu ívafi. Stál og múrsteinar mynda umgjörðina, þegar inn er komið.

“Á Írlandi er frábær markaður fyrir okkar vöru, enda hefur okkur verið afar vel tekið af írskum konum,” segir Lorraine Pringle markaðsstjóri og fjölmiðlafulltrúi Warehouse.