AppliCon AB í Svíþjóð, sem er í eigu Nýherja hf., skrifaði í dag undir samning um kaup á öllum hlutabréfum í sænska fyrirtækinu Marquardt & Partners AB. Í tilkynningu vegna kaupanna kemur fram að kaupin eru í samræmi við þá stefnu AppliCon að útvíkka þjónustu sína á sviði hugbúnaðarlausna fyrir fjármálafyrirtæki í Norður-Evrópu.

Marquardt & Partners er þekkt ráðgjafarfyrirtæki á sviði upplýsingatækni og sérhæfir sig í innleiðingu hugbúnaðar, ráðgjöf og þjónustu við fjármálafyrirtæki. Fyrirtækið var stofnað árið 1995 og er með aðsetur í Stokkhólmi. Þar starfa yfir 20 ráðgjafar með mikla reynslu og þekkingu á hugbúnaðarlausnum frá Calypso og SunGard Front Arena. Marquardt & Partners er  samstarfsaðili Calypso, sem er leiðandi framleiðandi á heimsvísu á sviði hugbúnaðar fyrir fjármálafyrirtæki.

AppliCon rekur skrifstofur í þremur löndum auk Íslands, í Bretlandi, Danmörku og Svíþjóð. Kaupin á Marquardt & Partners styrkja starfsemi AppliCon til muna sem eitt öflugasta ráðgjafarfyrirtæki Norðurlanda á sviði upplýsingatæknilausna fyrir fjármálafyrirtæki.  Með tilkomu Calypso hugbúnaðarlausna breikkar lausnaframboð AppliCon verulega. Hjá AppliCon fyrirtækjunum starfa eftir kaupin  yfir 200 ráðgjafar með sérhæfingu í SAP og Microsoft hugbúnaðarlausnum.

Í kjölfar kaupanna verður starfsemi Marquardt & Partners og AppliCon AB sameinuð undir merkjum síðarnefnda fyrirtækisins. Verða starfsmenn AppliCon AB 32 talsins eftir sameininguna. Allir lykilstjórnendur Marquardt & Partners flytjast yfir til AppliCon ásamt öðru starfsólki fyrirtæksins. Arne Nabseth er  framkvæmdastjóri AppliCon AB.

Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, segir í tilkynningu: „Við sjáum fyrir okkur að ráðgjafar Marquardt & Partners taki virkan þátt í verkefnum AppliCon í Norður-Evrópu. Á þann hátt dreifist þekkingin og reynslan þeirra milli starfsstöðva AppliCon, sem skilar sér í betri þjónustu til okkar viðskiptavina. Sameiningin við Marquardt & Partners gerir okkur kleift að taka að okkur stærri og fjölbreyttari verkefni fyrir fjármálageirann en áður.“

Um AppliConAppliCon er hugbúnaðar- og ráðgjafarfyrirtæki á sviði SAP og Microsoft lausna, með gullvottun frá báðum vörumerkjum. AppliCon starfar í fjórum löndum og eru starfsmenn fyrirtækisins um 200 talsins. Hjá AppliCon á Íslandi starfa 80 manns.  Lausnir AppliCon eru sérsniðnar að þörfum fyrirtækja á íslenskum markaði og eru mörg af öflugustu fyrirtækjum landsins meðal viðskiptavina AppliCon. SAP er stærsti framleiðandi viðskiptahugbúnaðarlausna í heiminum og þriðji stærsti sjálfstæði hugbúnaðarframleiðandinn.