Nysir UK Limited, sem er dótturfélag Nýsis hf., hefur keypt 69% hlutafjár í breska fasteigna­stjórnunarfélaginu Operon, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Kaupverðið er trúnaðarmál, en Landsbanki Íslands vann með Nysir UK Limited að fjármögnun kaupanna.

Velta félagsins á árinu 2006 er áætluð um 6 milljarðar króna. Hjá félaginu starfa um 800 manns. Meðeigendur Nysir UK í félaginu eru sex helstu stjórnendur þess.

Með kaupunum á meirihluta hlutafjár í Operon styrkir Nysir UK verulega stöðu sína í einkaframkvæmd og fasteignastjórnun á Bretlandsmarkaði en félagið á fyrir nokkra skóla og skrifstofubyggingar sem leigðar eru opinberum aðilum ásamt stoðþjónustu, segir í tilkynningunni.

Félagið er með höfuðstöðvar í Harrogate en er með samninga um fasteignastjórnun á byggingum víða um Bretland. Meðal annars rekur félagið byggingar og veitir margvíslega stoðþjónustu í þeim fyrir bresku ríkisstjórnina, svo sem samgönguráðuneytið og utanríkisráðuneytið. Einnig skóla, sjúkrahús, skrifstofur og rannsóknastofur. Þá sinnir félagið einnig rafmagns- og lagnahönnun, verkefnis­stjórnun og byggingastjórnun.