Dótturfélag Regins mun kaupa Austurstræti 16 í Reykjavík, sem hýsti gamla Reykjavíkurapótekið. Fasteignin var byggð á árunum 1916 - 1918 og er 2.773 m2 að stærð. Kauptilboð hefur verið samþykkt og áætlað er að kaupsamningur verði undirritaður í október 2013. Kaupverð fæst ekki gefið upp. Húsið er núna í eigu A16, sem er í eigu Karls Steingrímssonar í Pelsinum.

Húsið er hannað af Guðjóni Samúelssyni, arkitekti og húsameistara ríkisisns. Það á sér merkilega sögu í íslensku athafnalífi og er samofið uppbyggingu og sögu Reykjavíkurborgar. Húsið er friðað að utan, einnig tekur friðun til stigagangs að sunnan og innréttinga sem áður stóðu í apóteki.

Reginn telur eignina bjóða upp á mikla möguleika vegna einstakrar staðsetningar í miðbæ Reykjavíkur og nálægð við þjónustu, veitingastaði og menningalíf. Reginn hefur hug á því að fara í samstarf við öfluga aðila varðandi nýtingu hússins undir hótel-  og veitingarekstur.  Vandað verður til verka hvað varðar hönnun og breytingu innanhúss.

Kaup þessi eru innan ramma fjárfestingastefnu Regins sem felur meðal annars í sér að auka hlut í húsnæði  tengdu ferðaiðnaðinum. Kaupverðið er trúnaðarmál.