Eigendur Samherja og stjórnendur Deutsche Fishfang Union (DFFU) undirrituðu í gær samning um smíði tveggja skuttogara við norsku skipasmíðastöðina Kleven í Álasundi. Þetta kemur fram á vef Samherja .

Þar segir að skipin séu hönnuð af Rolls Royce. Haraldur Grétarsson, framkvæmdastjóri DFFU, segir þetta ánægjuleg tímamót í rekstri fyrirtækisins sem Samherji hefur átt og rekið í tuttugu ár.

„Við erum búin að fara í gegnum mikla hagræðingu og stundum mögur ár hér í Cuxhaven en nú sjáum við tækifæri til að byggja upp nýjan skipastól fyrir félagið og horfa til framtíðar.  Þetta eru fyrstu nýsmíðar félagsins frá því við keyptum það og löngu tímabært skref,“ er haft eftir Haraldi.

Haraldur segir jafnframt að skipin séu eins og þau gerist best í dag. Allur aðbúnaður áhafnar verði til fyrirmyndar og vinnuaðstaða eins og best gerist. Þá segir hann að hönnun skipanna geri veiðar þeirra umhverfisvænni en eldri skipa.