Dr. Daniel Levin, lögmaður sem sérhæfir sig í stjórnarháttum fyrirtækja, hefur verið kjörinn í stjórn Íslandsbanka í stað Raymond Quinlan. Að sögn Morgunblaðsins fór kjörið fram á aukaaðalfundi bankans í gær.

Quinlan sagði sig úr stjórn þegar hann tók við framkvæmdastjórastöðu hjá bandaríska fjármálafyrirtækinu CIT Group.