Fjölmiðlanefnd hefur gert Doc Media slf., sem á og rekur hlaðvarpið Dr. Football, að greiða 500 þúsund krónur í stjórnvaldssekt fyrir brot á lögum um fjölmiðla. Brotin hafi annars vegar falist í því að auglýsa áfengi og hins vegar þar sem félagið hafi ekki sinnt skráningarskyldu sem á fjölmiðlum hvílir. Aðstandendur hlaðvarpanna FantasyGandalf og Steve Dagskrá voru einnig taldir hafa brotið gegn lögunum en ekki var lögð sekt á þá.

Ákvarðanir fjölmiðlanefndar eru áhugaverðar fyrir þær sakir að með þeim er því í fyrsta sinn slegið föstu að hlaðvörp kunni að vera skráningarskyld sem fjölmiðlar og lúta þeim lögum sem um slíka gilda. Var það mat nefndarinnar að hlaðvörpin þrjú litu ritstjórn, efnistök og umfjöllum væri sumsé valin sérstaklega og þáttum kaflaskipt, og að efni þeirra hefði verið miðlað til almennings.

Ekki var fallist á varnir um að þáttunum væri ekki sérstaklega miðlað hér á landi heldur að þeim væri miðlað gegnum alþjóðleg forrit. Skýrar vísbendingar væru síðan um að aðstandendur þeirra nytu fjárhagslegs ávinnings af þeim þótt þeir hefðu þau ekki að aðalstarfi.

Í tilfelli Steve Dagskrá fólst brotið í að hafa auglýst veðmálasíðuna Coolbet og FantasyGandalf fyrir að auglýsa sömu síðu. Því til viðbótar hafði FantasyGandalf auglýst áfengisvörumerkið BOOM. Þau hlaðvörp höfðu heldur ekki sinnt skyldu sinni til að skrá sig hjá fjölmiðlanefnd.

FantasyGandalf var ekki gert að greiða stjórnvaldssekt meðal annars með vísan til þess að hlaðvarpið, sem síðar hét The Mike Show, var hætt starfsemi og að forsvarsmenn þess brugðust við fyrsta erindi nefndarinnar. Hið sama gilti um Steve Dagskrá, sem er að vísu enn starfandi, en forsvarsmenn þess brugðust við erindum og hafa hætt að auglýsa varning sem er í andstöðu við lög.

Í tilfelli Dr. Football var erindum aftur á móti svarað seint og illa og í raun ekki fyrr en stefnuvottur var sendur á heimili Hjörvars Hafliðasonar, umsjónarmanns þáttarins. Það horfði til mildunar að hlaðvarpið hefur nú verið skráð sem fjölmiðill og að það hefur ekki áður gerst brotlegt við lög um fjölmiðla. Sektin þótti því hæfilega ákveðin 500 þúsund krónur.